Oskar sjúkraþjálfari hóf störf 1.október.

Oskar Helgason Soler sjúkraþjálfari hóf störf hjá okkur í Kringlunni þann 1.október s.l. Oskar útskrifaðist frá Universidad CEU Pablo í Madrid árið 2022. Frá þeim tíma hefur hann starfað sem sjúkraþjálfari á Spáni, Kenya og Íslandi. Þess má geta að Oskar talar 5 tungumál þ.e. íslensku, spænsku, ensku, portúgölsku og þýsku. Við bjóðum hann velkomin til starfa.